Velkomin á heimasíðu Aglow á Íslandi
AGLOW í Hafnarfjörð - fimmtudag, 26. apríl kl. 20:00,
Fyrsti fundur á vegum Aglow verður verður haldinn í safnaðarrými Ástjarnarkirkju yfir rjúkandi kaffi og meðlæti. Edda Swan, formaður Landsstjórnar Aglow á Íslandi, kynnir Aglow starfið. Helena Leifsdóttir, formaður Aglow hópsins í Garðabæ, leiðir söng. Fríða, tengiliður Aglow starfsins á Völlunum, ræðir hugmyndina að baki stofnun hópsins. Aglow fundirnir eru opnir öllum konum, án nokkurra skuldbindinga. Allar konur eru velkomnar að kíkja í kaffi.
Árangursríkasta leiðin í átt til betra lífs.
Í auglýsingaskothríð liðinna vikna hefur mér oft verið hugsað til Guðs föður, einkaþjálfara kristinna manna, föður allrar visku og kærleika. Hann segir, sjá ég er með ykkur alla daga, allt til enda veraldarinnar. Hið fullkomna fyrirheit, hin fullkomna von. Hann elskar okkur öll, eitt og sérhvert, og er tilbúinn að fylgja okkur alla leið, aðeins ef að við viljum. Trúnni fylgir bók bókanna, Biblían, hin fullkomna stefnuskrá fyrir líf sérhvers manns. Í henni er að finna skilgreiningu á markmiði Guðs með okkar lífi, sem að er hvorki meira né minna en hið góða, fagra og fullkomna. ...lesa
| Jane Hansen Hoyt skrifar... Verk guðs í okkur er samfellt og eilíft. Guð byggir stöðugt ofan á, línu ofan á línu, sannleik ofan á sannleik, reynslu ofan á reynslu. Við erum þess vegna ekki að hefja nýja vegferð árið 2012; við höldum áfram á þeirri braut sem hann hefur lagt fyrir okkur.... lesa |
Samstöðuferð til Ísrael 30. Apríl -9. Maí 2012
Við hvetjum þig til að taka þátt í sögulegri ferð okkar til Ísrael nú í vor.
Ferðin hefst 30. Apríl og stendur til 9. Maí. Nánari upplýsingar um ferðina eru inni á heimasíðu aglow.org undir: gate1travel.com/aglow.
| Aglow.org - Ný heimasíða Nýtt útlit og ferskur blær einkennir nýja heimasíðu aglow.org. Á forsíðu eru flettigluggar með nýjustu fréttum utan úr heimi, bloggið hennar Jane og upplýsingar um "Ung kynslóð" (Generations Project) Mun einfaldara er að nálgast upplýsingar um starfið í heild sinni. Glæsileg heimasíða sem gaman er að skoða. Skoða aglow.org |
|
Ráðstefnan í Houston, Texas - Myndir Alþjóðlegar ráðstefnur Aglow International eru haldnar á tveggja ára fresti í Bandaríkjunum á mismunandi stöðum hverju sinni. 29.september- 2. október 2011 var ráðstefnan í Houston,Texas. Sex manns fóru frá Íslandi og áttum við öll yndislega daga og vorum mjög uppörvuð eftir mótið. Benny Hannesdóttir, formaður Aglow á Akureyri var fánaberi fyrir hönd Íslands... skoða myndir frá ráðstefnunni |