AGLOW í Vestmannaeyjum
Til hamingju með 20 ára afmælið
______________________________
Saman erum við sterkari
Aglow á Íslandi og Jesúkonur
Sameiginleg ráðstefna 24. - 25. september

Nánari upplýsingar
|

|
Blómahátíð í Hveragerði - Myndir
Aglow á Íslandi kynnti starfsemi hreyfingarinnar á Blómahátíðinni í Hveragerði dagana 25-27. júní sl. Aglowkonur tjölduðu veglegu tjaldi í Listigarðinum og var stöðugur straumur af fólki á öllum aldri sem vildi spjalla við okkur. Margir þáðu fyrirbæn og tóku með sér bæklinga um Aglowstarfið. Talið er að liðlega 40.000 gestir hafi heimsótt Hveragerði þessa helgi. Myndir komnar inná albúm.
|
 |
Er Aglowhópur starfandi í þínu bæjarfélagi?
Aglow hreyfingin á Íslandi vill ná til kvenna um allt land með fagnaðarerindið og hjálpa þeim að stíga inn í allt sem Guð hefur fyrir þær, hverja og eina. Yfirleitt eru Aglow fundir einu sinni í mánuði. Á fundunum okkar fáum við okkur kaffi saman og spjöllum, auk þess sem við lofum Guð, hlustum á gott uppbyggilegt Guðsorð eða vitnisburði sem margar frábærar konur hafa flutt okkur, og biðjum fyrir hvor annarri. Jesús Kristur er konungur okkar og nafn hans er upphafið á hverjum fundi. Allar konur eru velkomnar á Aglowfundina. Er Aglowhópur starfræktur í þínu bæjarfélagi ? skoða nánar...
|
|
Kertaljós bænar í hverri höfuðborg - Aþjóðlegt bænaátak - 2010
Mikilvægasta borg hvers lands er höfuðborgin. Við ætlum okkur að koma á kertaljósi bænar í höfuðborgum allra þjóða heimsins. Er við biðjum, færum við áhrif himnaríkis inn í hverja þjóð og opnum dyrnar fyrir borgarana að ganga inn í blessun og fyrirheiti Guðs....lesa meir
|
 |
Beðið fyrir þjóðinni
Talsverður hópur fólks safnaðist saman á Austurvelli um hádegisbil í dag miðvikudag 3. mars, þar sem fulltrúar kristinna trúfélaga á Reykjavíkursvæðinu héldu stutta bænastund til að biðja fyrir íslensku þjóðinni og ráðamönnum hennar.
Hópurinn hefur hist í hádeginu á miðvikudögum í Friðrikskapellu í rúmlega eitt og hálft ár til að biðja fyrir íslensku þjóðinni, velferð hennar og lausn á margvíslegum vanda.
Í dag var merkilegt að sjá hvernig veðrið breyttist rétt fyrir bænastund, snjókoma og slæmt skyggni vék fyrir heiðskírum himni og sólin braust fram.
"Þú skalt ekki framar hafa sólina til að lýsa þér um daga, og tunglið skal ekki skína til að gefa þér birtu, heldur skal Drottinn vera þér eilíft ljós og Guð þinn vera þér geislandi röðull. Þá mun sól þín ekki framar ganga undir og tungl þitt ekki minnka, því að Drottinn mun vera þér eilíft ljós og hörmungardagar þínir skulu þá vera á enda." Jes. 60:19-20 Skoða myndir ( mbl.is og Kefas.is)
|
 |
Myndir frá ráðstefnunni í Louisville.
Alþjóðlegar ráðstefnur Aglow International eru haldnar á tveggja ára fresti í Bandaríkjunum á mismunandi stöðum hverju sinni. 22. - 25. október 2009 var ráðstefnan í Louisville, Kentucky við Ohio ána. Sex manns fóru frá Íslandi og áttum við öll yndislega daga og vorum mjög uppörvuð eftir mótið. Agnes Eiríksdóttir, ritari Landsstjórnar var fánaberi fyrir hönd Aglow á Íslandi... skoða myndir frá ráðstefnunni.
|
 |
Myndir frá GLS leiðtogaráðstefnunni í Neskirkju.
Alþjóðleg leiðtogaráðstefna, Global Leadership Summit (GLS), var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í byrjun nóvember sl. Hún er ein stærsta samkirkjulega ráðstefna sem haldin er í heiminum með yfir 120 þúsund þátttakendum í 60 löndum. Ráðstefnan var bæði fróðleg og skemmtileg, salurinn var þétt setinn af áhugasömum leiðtogum og fólki í kristilegu starfi á Íslandi... Myndir komnar inná síðuna. Skoða myndir
|