Alþjóðlegt starf

Ráðstefnan í Houston - Texas.
Dagskrá - Bein útsending:


Fimmtudagskvöld 29. september 
kl. 8.00 PM  (kl.1 e.miðnætti ísl) Mótssetning - Fánaberar ganga í salinn.
Ræðumaður Chuck Pierce.

Föstudagur 30. September
Kl. 9.00 AM (kl.14.00-ísl ) Mikil tónlist - Ræðumaður Ray Huges
kl.  7.30 PM (kl.0.30 e. miðnætti.) Mikil tónlist -Ræðumaður Ray Huges

Laugardagur 1. Október
kl. 9.00  AM ( kl. 14.00 ísl) Mikil tónlist og lofgjörð / Ræðumaður Johnny Enlow
kl.14.00 AM ( kl.19.30 ísl) Mikil tónlist / Blandað efni/ kynning á starfinu á alþjóðlega vísu
kl. 7.30  PM (kl.0.30 e.miðn) Mikil tónlist / ræðumaður Johnny Enlow

Sunnudagur 2. Október
Kl.9.00 AM (kl.14.00 ísl) Mikil tónlist / Ræðukona Jane Hansen Hoyt
Mótslok
Tónlislt og lofgjörð er í höndum "Klaus" ásamt hljómsveit. 
 

   Tíu ára stúlka stofnaði Aglowhóp fyrir krakka í Armeníu

4. febrúar sl.var gefin út vilja yfirlýsing frá Aglow International fyrir Aglowhóp fyrir börn í Armeníu. Þessi nýi hópur mun starfa með Generation Project öðru nafni Ný kynslóð. Það sem er merkilegt er að leiðtoginn fyrir þessum hóp er tíu ára gömul stúlka að nafni Christiana.

Ég og vinkonur mínar vildum koma saman til að lesa í Biblíunni og spjalla saman um trúna á Guð. Ég elska Jesú og mig langar til að segja öðrum krökkum frá honum. Áður er ég tók þessa ákvörðun hafði ég talað við mömmu sem starfar innan Aglow hér í Armeniu, mömmu fannst ég of ung, en ég var ákveðin svo mamma hjálpaði mér að skrifa til Aglow International og ég fékk formlegt leyfi til að verða leiðtogi fyrir barnahóp sem heitir Ný kynslóð. Ég er rosalega glöð og spennt, ég veit að Jesús vill snerta krakka hér. Mig langar til að læra meira um Jesú og vaxa í trúnni á hann ásamt öðrum krökkum hér. Jesús sagði " Leyfið börnunum að koma til mín, bannið þeim það ekki, slíkra er Guðsríki.

Armenía er lítið land við landamæri Tyrklands, Georgíu og Azerbajdzjan og Íran. Biðjum fyrir hetjum trúarinnar í Aglowstarfinu í Armeníu.

________________________________________________________________________

Jane Hansen Hoyt,
forseti Aglow International

Það er meiri þörf á starfi Aglow í arabaríkjunum enn nokkru sinni áður.
Tilvitnun frá Barty Shokralla, CEO, Miracle Channel


Við höfum lagt bænir okkar á vogarskál þeirra þúsunda - milljóna - sem biðja stöðuglega fyrir friði í Jerúsalem og afkomu Ísrael. Við biðjum einnig fyrir kristnum Aröbum sem lenda inni á milli í þessum deilum sem og fyrir þeim múslimum sem eru að finna von í Jesú Kristi. Á undanförnum árum hafa milljónir múslima snúist til kristinnar trúar. Sögur þeirra og tölfræði, hafa verið sagðar víða um heim. Bara núna nýlega var viðtal á FOX sjónvarpsstöðinni við mann sem hafði tekið kristna trú, en faðir hans er einn af stofnendum Hamas.

Sjónvarpsútsendingar - Drottinn hækkar viðmiðin
 
 

Aglow hefur verið í framlínu þess sem Guð er að gera á meðal Múslima. Þann 1. apríl 2001, sex mánuðum fyrir atburði 11. september, hófust Arabísku sjónvarpsútsendingarnar okkar í Evrópu, Norður Afríku, og í Mið Austurlöndum. Á innann við 8 árum, höfum við gert 98 þætti sem hafa verið sendir út í milljónir skipta í gegnum þau fimm gervihnattakerfi sem við höfum nú þegar aðgang að og í gegnum sjónvarpsstöðvar í 60 löndum. Þessi kerfi ná til næstum 188 milljóna heimila, í Evrópu, Mið-Austurlöndum, Norður Afríku, Kanada, Bandaríkjunum, Mexico, Karabíska hafinu, Ástralíu, og Nýja Sjálandi. Það er einnig hægt að nálgast þættina í gegnum þó nokkrar vefsíður og þaðan hefur verið náð í þær í tug þúsundir skipta.

Diwaniya - The Rest of the Story

Tveir hópar þessara sjónvarpsstöðva (North America;  Europe, the Middle East, North Africa )

hafa sent okkur skýrslur vegna viðbragða við þáttunum fyrir árið 2008. (Diwaniya for Women og framhaldið, Diwaniya, The Rest of the Story) Þessar niður stöður eru svo spennandi að ég get ekki annað en deilt þeim með ykkur. 12.258 einstaklingar hafa haft samband í gegnum tölvupóst, síma, SMS, eða bréf.

2/3 af þessum svörum voru frá konum en 1/3 frá karlamönnum. Það sem gerir þetta svo sérstakt er hversu stór hluti svaranna er frá Mið-Austurlöndum, frá þjóðfélögum þar sem reynslu/ upplifunum/ skoðunun er ekki deilt utan nánustu fjölskyldu.

Sigurför fagnaðarerindisins

Markaðsrannsóknir sýna að á Vesturlöndum er hver svörun sem sjónvarpsþáttur fær, fulltrúi 100 annarra sem eru sömu skoðunar en tjá hana ekki. Í menningu Arabalandanna eru þessar tölur enn hærri. Þessi svör sem hafa borist þaðan standa hvert og eitt fyrir 1 milljón manna og kvenna hvers hjarta Guð hefur snert, vegna þess sem við höfum gert til að færa þeim fagnaðarerindið.

 

Von á árinu 2009

 

Guð er að hrista allt sem hægt er að hrista í hinum náttúrlega heimi, en í miðjunni á því höldum við áfram að bjóða þessu fólki líf sem er uppfullt af von, byggt á kærleika, og endurnýjað með stöðugt dýpkandi samfélagi okkar við almáttugan Guð. Það besta á en eftir að koma.

 

Taktu þér tíma til að fagna yfir hverjum manni, konu og barni sem hefur meðtekið boðskap vonar frá þessum sjónvarpsstöðvum á undanförnum 12 mánuðum - sem og yfir þeim milljónum sem munu meðtaka svalandi drykk hins lifandi vatns úr þínum höndum þegar þau horfa á þættina árið 2009.

Með kærleika Hans og mínum,

 

Jane Hansen Hoyt

/lauslega þýtt Ásta Lóa